SKILMÁLAR OG PERSÓNUVERNDARSTEFNA
Quality Console – QC ehf
Síðast uppfært: 16. janúar 2026
1. Gildissvið
Skjal þetta gildir um notkun hugbúnaðar og þjónustu Quality Console, sem er rekin af QC ehf. Með notkun þjónustunnar samþykkir notandi þessa skilmála og vinnslu persónuupplýsinga samkvæmt persónuverndarstefnu hér að neðan.
2. Skilgreiningar
Fyrirtækið: QC ehf.
Notandi: Einstaklingur með aðgang að kerfinu.
Viðskiptavinur: Fyrirtæki sem kaupir þjónustuna.
3. Þjónustan
QC ehf. veitir stafrænt gæðakerfi og tengda þjónustu. Þjónustan er veitt „eins og hún er“ og QC ehf. áskilur sér rétt til að uppfæra eða breyta henni.
4. Aðgangur og notkun
Notandi ber ábyrgð á öryggi innskráningarupplýsinga.
Notkun skal vera í samræmi við lög, reglur og þessa skilmála.
Misnotkun eða öryggisbrot geta leitt til tafarlausrar lokunar aðgangs.
5. Ábyrgð viðskiptavinar
Viðskiptavinur ber ábyrgð á:
- Lögmætri vinnslu persónuupplýsinga innan kerfisins.
- Því efni sem skráð er eða hlaðið upp.
- Því að starfsmenn fylgi skilmálum.
6. Verð og greiðslur
Þóknun QC ehf. er í samræmi við gildandi verðskrá hverju sinni og ábyrgist QC ehf. að rétt gjaldskrá sé aðgengileg á vef Quality Console. Engin ógagnsæ gjöld eru falin í áskrift eða notkun þjónustunnar.
Í upphafi hvers mánaðar sendir QC ehf. út reikning fyrir notkun undangengins mánaðar (t.d. eru reikningar sendir út 1. júní fyrir notkun í maí). Krafa fellur á eindaga sjö (7) dögum eftir útgáfu hennar.
Komi til vanskila eða seinkunar á greiðslu áskilur QC ehf. sér rétt til að stöðva aðgang að þjónustunni eða takmarka aðgang (t.d. í skrifvarinn aðgang) og rukka dráttarvexti eins og lög leyfa.
7. Takmörkun ábyrgðar
Samningsaðilar verða ekki krafðir um bætur vegna samnings þessa ef óviðráðanleg atvik svo sem vinnudeilur, náttúruhamfarir, styrjaldir, lög, reglugerðir eða önnur þau atvik sem ekki eru sök samningsaðila eða í þeirra valdi að ráða við, koma í veg fyrir efndir hans.
Þjónustusali er ekki skaðabótaskyldur vegna tjóns sem þjónustukaupi kann að verða fyrir vegna galla eða bilunar í hug- eða vélbúnaði, né heldur tjóns sem stafar af tölvuvírus, rangri meðferð, misnotkun eða slysni af hálfu þjónustukaupa. Samningsaðilar verða ekki krafðir um bætur fyrir rekstrartap, glataðan ágóða, glataðan sparnað, tapaðra gagna eða annars óbeins tjóns eða krafna þriðja aðila á hendur gagnaðila.
Skaðabótakröfur skulu settar fram innan eins árs frá tjónsatburði.
8. Hugverkaréttur
Allur hugverkaréttur að hugbúnaði og efni hans er í eigu QC ehf.
Viðskiptavinur fær takmarkaðan, óframseljanlegan notkunarrétt samkvæmt samningi.
9. Persónuupplýsingar og vinnsla
QC ehf. er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga í tengslum við Quality Console.
Hvaða persónuupplýsingar?
- Tengiliðaupplýsingar (t.d. netfang)
- Notkunar- og öryggisgögn (IP-tala, innskráningar, logs)
Hvers vegna?
- Rekstur, öryggi og þróun þjónustunnar
- Samskipti við notendur
- Uppfylling samnings- og lagaskyldna
Lögmætur grundvöllur
- Nauðsyn vegna samnings
- Lögmætir hagsmunir QC ehf.
- Samþykki, þar sem við á
10. Miðlun, geymsla og öryggi gagna
Persónuupplýsingum er aðeins miðlað til þjónustuaðila sem vinna gögn í umboði QC ehf. eða ef lög krefjast.
Gögn eru geymd eins lengi og nauðsynlegt er vegna tilgangs vinnslunnar.
Við beitum viðurkenndum tæknilegum og skipulagslegum öryggisráðstöfunum.
Við lok samnings getur viðskiptavinur óskað eftir gagnaútflutningi.
11. Réttindi notenda
Notendur eiga rétt á aðgangi, leiðréttingu, eyðingu, takmörkun eða andmælum við vinnslu, gagnaflutningi og að leggja fram kvörtun til Persónuverndar.
12. Uppsögn og breytingar
Uppsagnarfrestur samnings er að lágmarki þrír (3) mánuðir.
QC ehf. áskilur sér rétt til að uppfæra þetta skjal. Uppfærð útgáfa tekur gildi við birtingu.
13. Lagalegur grundvöllur
Um samninginn gilda íslensk lög.
Ágreiningsmál skulu rekin fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra.
14. Samskipti
QC ehf.
qualityconsole@qualityconsole.net